Lífstílsferðir til Amorgos
Í sumar verðum við með nokkrar ferðir
til Grísku paradísareyjunnar Amorgos í samstarfi við Siggu Dóru.
Gisting á lúxus 5* Spa hóteli, frábær dekur aðstaða, holl og góð hreyfing, frábær matur, góður félagsskapur og hreyfing undir stjórn reyndra þjálfara.
Allar ferðir eru undir stjórn Siggu Dóru Matthíasdóttur.
Sigga Dóra er FÍA einkaþjálfari, Rope Yoga/Action þjálfari, Lífstílssráðgjafi og NLP ráðgjafi. Við þetta hefur hún verið að vinna í fjöldamörg ár. Meðal annars með sína eigin heilsumiðstöð undanfarin ár. Hún hefur líka verið að fara með hópa til Florida í lífsstílsferðir og hefur hún verið með fastan kúnnahóp í þessu. Fólk sem kemur aftur og aftur.
Sigga Dóra er orðin vel þekkt innan heilsugeirans og vel metin, enda með fjöldann allan af ángæðum viðskiptavinum á bak við sig.
Með Siggu Dóru í ferðunum eru svo fjölmargir gesta þjálfarar
29 maí verður meðal annars Kári Eyþórsson NLP ráðgjafi í þjálfunarteyminu með frábært innlegg.
Þann 18 - 26 júní mun lífskúnstnerinn Sigga Klingenberg kenna okkur að lifa lífinu lifandi - eða eins og hún segir sjálf "..að lifa er að þora" og "..það er bara til ein dauðasynd og það er að vera leiðinlegur".
26 júní - 3 júlí ferðin verður með aðeins öðruvísi sniði þar sem meiri áhersla verður lögð á markmið og árangur í lífi og starfi.
Í þessari ferð verður Herdís Pála Pálsdóttir, markþjálfi með okkur í för og mun hún leiða verkefni og fyrlestra um 360° árangur í leik og starfi.
Hérdís Pála er alþjóðlega vottaður markþjálfi, reyndur fyrirlesari og kennari, ráðgjafi, bókahöfundur og framkvæmdastjóri. Sérleg áhugamanneskja um að vinna með fólki að velgengni og velsæld – til að koma í veg fyrir að við endum sem bitur gamalmenni!
Nánari upplýsingar má finna um Herdísi Pálu á



Dagskráin
Dagurinn hefst með næringarríkum morgunverði kl.9.00 -10.00
Dagskrá með þjálfurum fra kl.10.00-12.00
-
Holl hreyfing útivera strandarganga
-
Styrktarþjálfun / Hópþjálfun
-
Zorba/Salsa/Zumba dans
-
Sjálfstyrkingar fyrirlestrar
-
Rope Action,teygjur,Slökun
-
Sundlaugarfjör
Kvöldvökur
Hádegimatur 12.00 / Kvöldmatur 19.00
(Suma daga er hádegismatur innifalinn - en oftast er
það kvöldmatur)
Frí tími dekur, meðferðir á hótelinu eða skemmtilegar
ferðir á vegum hótelsins.
Draumaeyjan Amorgos
Amorgos er eins og draumaeyja, algjörlega óspillt. Við förum til baka í gamla notalega tíma þar sem við einföldum okkar líf sem er oft á tíðum mjög flókið og veldur orðið kvíða og þunglyndi.
Við ætlum að hækka tíðnina í gleðinni, hlaða batteríin, borða hollan og góðan mat og njóta þess að vera í núinu. Hugmyndin er að komast í burtu frá hinu daglega amstri og setja allan fókus á sjálfan sig til að byggja sig upp andlega og líkamlega.



Afþreying
Hótelið býður upp á ferðir eins og köfun / Snorkling, klausturferð og borgarferð
Grískir dansar og fleira skemmtilegt
Sú frábæra aðstaða sem er í boði á þessu hóteli á Amorgos er fullkomlega til þess fallin að tengja saman andlega og
líkamlega þætti sem tryggja bestan
framtíðar árangur
Ekki skaðar frábært veður, blár
himinn, heitur sjór, pálmatré og
mikil jákvæð orka.

Hótelið:
Hótel SPA Aegiali er 5 stjörnu lúxus hótel. Þetta er fjölskyldurekið fyrirtæki og eigendur leggja metnað sinn í persónulega og
góða þjónustu. Sundlaugar, SPA, yoga og meðferðir í boði.
Mikil áhersla er lögð á hreint fyrsta flokks hráefni í allan mat.



Ferðatilhögun: (flug er ekki innifalið)
Flug Kef /London Gatwick
Gatwick/Aþena
Gisting í eina nótt í Aþenu
Morgunmatur kl.9.00-10.00
Gengið upp að Acropolis og rölt um þröngar göngugötur. Skoðum hinar skemmtilegu litlu búðir og bari /veitingastaði.
Sigling frá Piraneus Höfn Aþenu kl. 17.30
Komið til Amorgos Aegiali Höfn kl. 01.00
Heimferð:
Hægt er að lengja ferð eftir vild og gista lengur i Aþenu eða fara beint heim Aþena / London
London/ Keflavík
Við aðstoðum við flugbókanir ef óskað er gegn 5.000,- bókunargjaldi.
Dagsetningar á ferðum
1 - 9 maí - UPPSELT
8 - 16 maí - ÖRFÁ SÆTI LAUS
18 - 26 maí
29 maí - 6 júní - ÖRFÁ SÆTI LAUS
8 - 16 júní - UPPSELT
18 - 26 júní - ÖRFÁ SÆTI LAUS
26 júní - 3 júlí
Innifalið i pakkaferð
Gisting, hálft fæði, námskeið, aðgangur að SPA hótelsins, 1.nuddtími, næringarhristingar/heilsudrykkir og rútur til og frá höfninni Amorgos.
Gisting 7.nætur á 5 * Hotel Spa Aegiali
Ekki innifalið
Flug.
Rútuferðir frá flugvelli í Aþenu og að höfninni. Fyrir þetta þarf að borga aukalega á staðnum.
Flug og ferjur
Hótelgisting í Aþenu
Verð aðeins 149.000 fram til 16 júní
16.juni 169.000 ,-
26 júní 179.000,-

Viltu fá nánari upplýsingar um ferðina eða skrá þig?
Hafðu samband
Tengiliður
Harpa Einarsdóttir
Sími: 534 3890
Gsm: 822 3890
Sigga Dóra Matthíasdóttir
Sími: 692 3062